Ráðningasamningar

Hvað á að standa í ráðningarsamningi? 

Ráðningarsamningur er samningur milli starfsmanns og atvinnurekanda þar sem kveðið er á um vinnuframlag starfsmanns í þágu atvinnurekandans gegn tilteknu gjaldi í formi launa og annarra starfskjara frá atvinnurekanda.

Skylt er að ganga frá skriflegum ráðningarsamningi milli starfsmanns og forstöðumanns/vinnuveitanda við upphaf ráðningar. Með því að taka skýrt fram í ráðningarsamningi hvaða reglur skuli gilda um ráðningarsamband, bæði varðandi starfið og þau kjör sem því fylgja er, hægt að koma í veg fyrir ágreining síðar.

Í ráðningarsamningi skal m.a. tilgreina eftirfarandi atriði:
 

Deili á aðilum, nöfn og kennitölur vinnuveitanda og starfsmanns
Vinnustað og heimilisfang vinnuveitanda (starfsstöð)
Starfsheiti
Vinnutímaskipulag og starfshlutfall
Upphafstíma ráðningar og lengd ráðningar, sé hún tímabundin, ásamt uppsagnarfresti
Ráðningarkjör, t.d. með tilvísun til launataxta og aðrar greiðslur
Orlofsrétt
Rétt til launa í veikindum
Lífeyrissjóð og stéttarfélag

Breytingar á ráðningarkjörum umfram það sem leiðir af lögum eða kjarasamningum skal staðfesta með skriflegum ráðningarsamningi.

Ráðningarsamningar eru staðlaðir hjá opinberum aðilum.
Ráðningarsamningsform.

Svæði